Fyrir þig, smáfólkið og umhverfið..
Radísa er umhverfis og manneskjuvæn lífstílsverslun, með leikföng, skrautmuni, bætiefni, súperfæði og snyrtivöru.
Allar vörurnar hjá Radísu hafa einn eða fleiri af eftirfarandi kostum; umhverfisvænar, vistvænar, endurunnar, endurvinnanlegar, úr hráefnum náttúrunnar, lífrænar, fair trade eða handgerðar.
Leikföngin og skrautið er gert til að endast eða endurvinna, gefa hvorki frá sér mengandi efni né valda sjónmengun, því fegurð og fágun eru í fyrirrúmi.
Radísa hvetur þig til að velja vörur sem fegra heiminn og leggur ríka áherslu á að umhverfið sé vænt fyrir okkur og að við séum væn við umhverfið.



